Boðað er til aðalfundar hjá Hinu íslenska náttúrufræðifélagi laugardaginn 25. febrúar 2006 kl. 14:00 í Kórnum, fundarsal Náttúrufræðistofu Kópavogs í Safnahúsinu, Hamraborg 6a, Kópavogi.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
1. Fundarsetning.
2. Skýrsla stjórnar HÍN fyrir árið 2005.
3. Reikningar HÍN fyrir árið 2005.
4. Skýrslur fulltrúa HÍN í opinberum nefndum fyrir árið 2005.
5. Kjör stjórnarmanna og embættismanna félagsins.
6. Tillögur til ályktunar.
7. Önnur mál.
8. Fundarslit.
Kaffiveitingar verða í boði.