Fyrsta vetrarerindi HÍN: Loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á lífríki Íslands

Mánudaginn 29. september 2008 flytja Dr. Snorri Baldursson og Dr. Bjarni Diðrik Sigurðsson erindi um rannsóknir á loftslagsbreytingum og áhrif þeirra á lífríki lands og sjávar. Erindið er byggt á rannsóknum síðustu ára og nýútkominni skýrslu umhverfisráðuneytisins um Hnattrænar loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á Íslandi.
Erindið verður haldið kl. 17:15 í stofu 132, í Öskju, Háskóla Íslands.

 

Dr. Snorri Baldursson, Náttúrufræðistofnun Íslands.
Snorri er doktor í hagnýtri plöntuerfðafræði en hefur sinnt stjórnunarstörfum við Náttúrufræðistofnun Íslands undanfarin ár. Hann er nú í leyfi frá stofnuninni og vinnur að bók um vistfræði Íslands.

Dr. Bjarni Diðrik Sigurðsson. Landbúnaðarháskóla Íslands.
Bjarni er doktor í skógvistfræði og prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands þar sem hann vinnur við kennslu og rannsóknir í skógvistfræði og trjálífeðlisfræði.

Ágrip erindis
Samkvæmt nýlegum rannsóknum hefur loftslag farið hlýnandi hér á landi sem annars staðar á undanförnum árum og hafa síðustu fimm árin verið með þeim hlýjustu sem mæld hafa verið. Umtalsverðar breytingar hafa orðið á lífríki landsins á sama tíma, en þar sem rannsóknir eru takmarkaðar er oft erfitt að greina á milli breytinga sem stafa af hlýnun loftslags og þeim sem stafa af breytingum á atvinnuháttum og landnotkun, einkum fiskveiðum og búfjárbeit. Í erindinu verður fjallað um þær breytingar sem þegar eru merkjanlegar á gróðurfari og dýralífi til lands og sjávar og reynt að spá fyrir um frekari breytingar sem verða á öldinni gangi spár vísindamanna um loftslagsbreytingar af mannavöldum eftir.