Fjórða vetrarerindi HÍN og það fyrsta á nýju ári – Lífríkiskreppur í Mývatni

Mánudaginn 26. janúar flytur Dr. Árni Einarsson erindi um lífríki Mývatns.

Erindið verður haldið kl. 17:15 í fyrirlestrarsal Menntaskólans við Sund að Gnoðarvogi 43.

Dr. Árni Einarsson líffræðingur flytur erindi um rannsóknir á lífríki Mývatns. Erindið er byggt á rannsóknum Árna og samstarfsmanna hans síðustu árin. Niðurstöður þeirra voru nýlega birtar í hinu merka tímariti Nature.
20090121101810700172

Dr. Árni Einarsson, Háskóla Íslands.
Árni Einarsson lauk BS-prófi í líffræði frá Háskóla Íslands 1976 og doktorsprófi í vistfræði frá háskólanum í Aberdeen í Skotlandi 1986. Hann hefur starfað við rannsóknir á Mývatni frá árinu 1975 og er forstöðumaður Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn.

Ágrip erindis
Mývatn er einhver lífauðugasti staður hér á landi (1. mynd). Frjósemi vatnsins er óvenju mikil og má rekja hana til sjaldgæfra jarðfræðilegra aðstæðna. Fylgst hefur verið með vatninu og lífríki þess í aldarþriðjung og hefur komið í ljós að lífríkið er miklum sveiflum undirorpið og eru líkur á að sveiflurnar hafi tekið á sig núverandi mynd um 1970. Sveiflur í átustofnum hafa nú leitt til þess að bleikjustofn þessa fornfræga veiðivatns stendur ekki lengur undir neinni veiði svo heitið geti. Fuglastofnar vatnsins eru þó enn í góðu lagi.
Sveiflur átustofnanna eru öfgakenndar og er hundraðþúsundfaldur munur á fjölda mýflugna (2. mynd) í hámarksárum miðað við lágmarkstímabil, svo dæmi sé tekið. Nýjustu rannsóknir sýna að átustofnarnir hrynja í kjölfar offjölgunar á mýflugulirfum sem ná að éta fæðuna frá afkomendum sínum. Eldri kynslóðir af mýflugulirfum sóa þannig auðlindum afkvæma sinna. Sveiflugangurinn er háður óvenjulegum en þó náttúrulegum lögmálum en sveiflurnar virðast hafa dýpkað vegna þess að straumakerfi vatnsins hefur breyst af manna völdum.

20090121101809566631

1. mynd. Hinn mikli grasvöxtur á bökkum Mývatns á rætur að rekja til næringarefna sem mýflugurnar bera með sér úr vatninu.

20090121101811829274

2. mynd. Mýstofnar nálgast nú hámark eftir lægð undanfarinna ára. Tímamót urðu á síðasta ári í skilningi á mýsveiflum.