Mánudaginn 23. febrúar flytur Rannveig Magnúsdóttir erindi um pokadýr Ástralíu.
Erindið verður haldið kl. 17:15 í fyrirlestrarsal Menntaskólans við Sund að Gnoðarvogi 43.
Í þessum fyrirlestri mun Rannveig fara aftur í tímann og skoða uppruna og örlög pokadýra í heiminum og einnig fjalla um í máli, myndum og myndböndum, nokkur af þeim pokadýrum sem hún hitti á ferðum sínum um Ástralíu. Þar á meðal er fenjapokamúsin (Antechinus minimus) sem var viðfangsefni meistaraprófsverkefnis hennar.
Rannveig Magnúsdóttir, doktorsnemi í líffræði.
Rannveig er stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og lauk MS-prófi í líffræði frá Háskóla Íslands árið 2005 í samstarfi við Deakin háskóla í Geelong, Ástralíu. Hún útskrifaðist úr Kvikmyndaskóla Íslands árið 2007 og stundar nú doktorsnám í líffræði við Háskóla Íslands í samstarfi við háskólann í Oxford.
Ágrip erindis
Pokadýr í Ástralíu eru miklu stærri og fjölbreyttari hópur dýra en margir gera sér grein fyrir. Kengúrur og kóalabirnir koma flestum kunnuglega fyrir sjónir en í þessari fjarlægu heimsálfu leynast margar aðrar furðuverur sem fáir vita um, m.a. pokamerðir, maurapokar, pokagreifingjar, pokaíkornar og pokamoldvörpur. Eins og þessi nöfn benda til líkjast sum þessara dýra öðrum alls óskyldum fylgjuspendýrum frá öðrum heimsálfum og hér hefur því orðið samhliða þróun. Pokadýr eru af mörgum stærðum og gerðum; minnsta pokamúsin (Planigale ingrami) er einungis 4 grömm en rauðkengúran (Macropus rufus) getur orðið 70-80 kíló. Mörg risapokadýr voru til áður en maðurinn fluttist til Ástralíu en þau dóu öll út fyrir um 47 þúsund árum og talið er að maðurinn hafi haft þar mikil áhrif. Diprotodon var stærsta pokadýr sem vitað er að hafi lifað en það var tveggja metra hátt og vó yfir tvö tonn. Skyldmenni þess í dag eru kóalabirnir og vambar.

1. mynd. Fenjapokamús (Antechinus minimus) í Urquhart’s Bluff, Viktoríu. Lífsferill Antechinus og Phascogale pokamúsa er einstakur meðal allra spendýra í heiminum þar sem öll karldýr í stofninum deyja strax eftir mökunartímann.

2. mynd. Kvokka (Setonix brachyurus) á Rottnest eyju, Vestur Ástralíu. Þegar landkönnuðir sáu þessi dýr fyrst héldu þeir að þetta væru risavaxnar rottur.