Aðalfundur HÍN!

Boðað er til aðalfundar Hins íslenska náttúrufræðifélags laugardaginn 26. febrúar 2011 kl. 14:00 í Kórnum, fundarsal Náttúrufræðistofu Kópavogs að Hamraborg 6a, Kópavogi.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

1. Fundarsetning.
2. Skýrsla stjórnar HÍN fyrir árið 2010.
3. Reikningar HÍN fyrir árið 2010.
4. Skýrslur fulltrúa HÍN í opinberum nefndum fyrir árið 2010.
5. Tillögur til ályktunar.
6. Kjör stjórnarmanna og embættismanna félagsins.
7. Önnur mál.
8. Fundarslit.

Í stjórn HÍN verða kosnir þrír einstaklingar. Þrír fráfarandi stjórnarmenn sem eru að ljúka öðru ári kjörtímabilsins, þau Ester Ýr Jónsdóttir, Esther Ruth Guðmundsdóttir og Hilmar J. Malmquist, hafa allir gefið kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn HÍN. Aðrir stjórnarmenn sitja áfram í stjórn og klára annað ár kjörtímabilsins.

Kaffiveitingar verða í boði.

Allir eru velkomnir!