Umbrotin í Bárðarbungu og Holuhrauni

Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 29. september 2014 í sal 101 í Lögbergi, húsi félagsvísindadeildar Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15. Athugið nýja staðsetningu!

Það eru jarðeðlisfræðingarnir Kristín Jónsdóttir og Magnús Tumi Guðmundsson sem flytja erindi sem þau nefna Umbrotin í Bárðarbungu og Holuhrauni.

Ljósmynd: Magnús Tumi Guðmundsson

Ljósmynd: Magnús Tumi Guðmundsson

Ágrip af erindi

„Þann 16. ágúst síðastliðinn hófst áköf jarðskjálftahrina í Bárðarbungu. Á tveimur vikum færðust skjálftarnir til norðausturs undir Dyngjujökli og 29. ágúst varð smágos í Holuhrauni, um 5 km norðan við jökuljaðarinn. Það gos var skammlíft en tveimur dögum síðar hófst gos fyrir alvöru í Holuhrauni. Þegar þetta er ritað hefur gosið án afláts síðan og engin merki um að dragi úr virkninni. Ummerki hafa einnig fundist um smágos undir jökli suðaustan Bárðarbungu og undir Dyngjujökli. Stór hraunfláki hefur myndast og móða frá gosstöðvunum veldur mengun víða um land. Eitt helsta einkenni umbrotanna eru stórir jarðskjálftar í Bárðarbungu. Þann 5. september kom í ljós að askjan í Bárðarbungu sígur og nálgast sigið nú 30 metra. Öskjusig eru ekki algeng og eina staðfesta öskjusigið á sögulegum tíma á Íslandi varð þegar Öskjuvatn myndaðist í kjölfar eldgosa og gliðnunarhrinu 1875. Í erindinu verður atburðarásin rakin, greint frá því hvernig staðið er að vöktun og hvernig hún kallar á samvinnu margra stofnanna, innlendra og erlendra auk þess fjallað verður um samhengi við fyrri atburði, öskjusig og eldgos.“

Kristín Jónsdóttir er fædd árið 1973. Hún lauk BS-prófi í jarðeðlisfræði frá HÍ 1999 og Ph.D. gráðu við Uppsala University árið 2009. Kristín starfar sem fagstjóri jarðskjálftavár og jarðskjálftaeftirlits á Veðurstofu Íslands og vinnur þar m.a. að rannsóknum á jarðskjálftum og eldvirkni.

Magnús Tumi Guðmundsson er fæddur árið 1961. Hann tók BS-próf frá Háskóla Íslands í jarðeðlisfræði 1986 og doktorsprófi frá University College London 1992. Magnús Tumi er prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands. Helstu rannsóknasvið hans eru eldgos og jarðhiti í jöklum, sprengigos og eldvirkni almennt.