Þann 27. febrúar síðastliðinn fór fram aðalfundur Hins íslenska náttúrufræðifélags í húsnæði Náttúrufræðistofnunar Íslands. Að loknu áhugaverðu erindi Sigurðar Thorlacius um áhrif matvælaframleiðslu á líffræðilegan fjölbreytileika var gengið til hefðbundinna aðalfundarstarfa. Þar á meðal fór fram kjör stjórnar félagsins. Ný stjórn hefur nú skipt með sér verkum en hana skipa:
- Sölvi Rúnar Vignisson, formaður.
- Sveinn Kári Valdimarsson, varaformaður
- Anna Heiða Ólafsdóttir, félagsvörður.
- Benedikt Traustason, vefstjóri.
- Bryndís Guðrún Róbertsdóttir, gjaldkeri.
- Einar Pétur Jónsson, kynningarstjóri.
- María Helga Guðmundsdóttir, ritari.
Á sama tíma létu af störfum:
- Ester Rut Unnsteinsdóttir, formaður.
- Hrefna Sigurjónsdóttir, varaformaður.
- Hrefna Berglind Ingólfsdóttir, ritari
- Hlín Halldórsdóttir, vefstjóri.
- Helena W. Óladóttir, fræðslustjóri.
Er þeim þakkað kærlega fyrir óeigingjarnt starf í þágu félagsins.
You must be logged in to post a comment.