Við í stjórn höfum rætt að rétt sé að koma á sérstakri nefnd sem sér um miðlun enda reynist það einfaldlega of mikið fyrir stjórnarmeðlimi að sinna öllum þessum þáttum miðlunar sem skyldi. Fyrsta skrefið í átt að þeirri hugmynd okkar er að fá félagsmann utan stjórnar til að sinna vefstjórn fyrir félagið. Þetta er ólaunað starf en upplagt að hafa inni á ferilskrá sinni enda geta allir kíkt inn á heimasíðu og gott starf viðkomandi. Vefsíðan er unnin í WordPress og mjög létt að viðhalda.
Vefstjóri myndi sjá um að viðhalda heimasíðu HÍN og halda henni lifandi. Allar meiriháttar breytingar á síðunni þarf að bera undir aðalstjórn. Mikilvægt er að síðan sé aðgengileg, aðlaðandi og auðvelt að viðhalda. Sömuleiðis er mikilvægt er að taka afrit af síðunni áður en stærri uppfærslur eða breytingar eru gerðar. Netfang vefstjóra er vefstjori@hin.is og vefstjóri þarf því líka að sjá til að svara skeytum sem kunna að berast á það netfang, jafnvel þó ekki sé um beina spurningu að ræða þá er gott að senda létt og laggott svar svo það sé augljóst að skeytið hafi verið móttekið, það kann fólk að meta. Þegar þurfa þykir eða þegar ekki hefur borist efni frá öðrum skal vefstjóri kalla eftir efni á síðuna, hvort heldur sem er frá aðalstjórn eða öðrum starfshópum innan félagsins.
Áhugasamir mega hafa samband við undirritaða á netfangið vefstjori@hin.is eða í gegnum Facebook messenger.
Fyrir hönd stjórnar,
Gróa Valgerður