Sveppasöfnun í Heiðmörk með HÍ og FÍ 🍄🍄‍🟫

Þann 25. ágúst standa Háskóli Íslands og Ferðafélag Íslands fyrir hinni árlegu sveppasöfnunarferð í Heiðmörk. Ferðin er hluti af samstarfsverkefni HÍ og FÍ sem kallast Með fróðleik í faranesti.

Tilgangur ferðarinnar er að læra um hina ýmsu sveppi og greina æta frá óætum. Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í vatnalíffræði og Ólafur Patrick Ólafsson, kennari í líffræði við HÍ og fræðslustjóri HÍN leiða ferðina ásamt dyggu aðstoðarfólki.

Þáttakendur eru hvattir til að taka með sér sveppabækur og ílát. Ferðin tekur um 2 klukkustundir og er þátttaka ókeypis. Ekki þarf að skrá sig sérstaklega í ferðina.

Mæting er kl. 17 á Borgarstjóraplaninu

Öll velkomin 🤗