Greinasafn eftir: ksverris

Málþing um íslenska refinn

Við viljum vekja athygli á þessu málþingi næstkomandi þriðjudag

Málþing um íslenska refinn verður haldið þriðjudaginn 9. júní 2026 kl. 13:00 í Eddu, húsi íslenskunnar og í streymi. Fjallað verður um fjölbreytta þætti í líffræði og vöktun íslenska refastofnsins. Meðal annars verður rætt um sérstöðu stofnsins, vöktun hans, erfðafræði og svipgerðir, breytingar á fæðuvali með hlýnandi loftslagi, afræningjatengsl og nýtt stofnlíkan. Einnig verður fjallað um refaveiðar og veiðigögn, sem og þátttöku refaskyttna í vöktun. Að loknum fyrirlestrum fara fram pallborðsumræður.

Málþingið er öllum opið og aðgangur ókeypis. Tengill á streymi

Dagskrá:
13:00–13:10 Ávarp – Eydís Líndal Finnbogadóttir, forstjóri Náttúrufræðistofnunar
13:10–13:30 Hinn einstaki íslenski refastofn og vöktun hans – Ester Rut Unnsteinsdóttir, spendýravistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun
13:30–13:50 Svipfar og erfðafræði íslensku tófunnar – Anna Bára Másdóttir, doktorsnemi við Háskóla Íslands og Náttúrufræðistofnun
13:50–14:10 Fæðuval íslenskra refa á 40 árum hlýnunar – Sigrún Ninna Sigurðardóttir, líffræðingur hjá Dýraþjónustu Reykjavíkur
14:10–14:30 Afræningi og bráð: samspil í fæðuvefnum [fyrirlestur á ensku] – Nicolas Lecomte, prófessor í dýravistfræði við Háskólann í New Brunswick í Kanada
14:30–15:00 Kaffihlé
15:00–15:20 Nýtt stofnlíkan fyrir íslenska refinn [fyrirlestur á ensku] – Bruce James McAdam, sjálfstætt starfandi tölfræðingur í Skotlandi
15:20–15:40 Refaveiði og veiðigögn – Skúli Þórðarson, verkefnastjóri hjá Náttúruverndarstofnun
15:40–16:00 Þátttaka refaskyttunnar í vöktun – Kári Gunnarsson, refaskytta úr Skagafirði
16:00–16:30 Pallborðsumræður

Fundarstjóri: Sunna Björk Ragnarsdóttir, sviðsstjóri hjá Náttúrufræðistofnun

Heimsdagur hafsins – málþing í Hörpu 8. júní

Við viljum vekja athygli á þessum áhugaverða viðburði 👇

Sameinuðu þjóðirnar samþykktu árið 2008 að tilnefna 8. júní ár hvert sem Heimsdag hafsins (e. World Ocean Day) til að minna á mikilvægi hafsins fyrir þjóðir heims og hvetja til aukinnar vitundar um nauðsyn verndunar þess. Af því tilefni standa utanríkisráðuneytið og Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands fyrir málþingi sem tileinkað er hafinu mánudaginn 8. júní kl. 13.00 – 15.30 í Björtuloftum í Hörpu.

Nauðsynlegt er að skrá sig á viðburðinn hér: https://forms.office.com/e/UU02rMBQuc

Á málþinginu verður fjallað um stöðu og framtíð hafsins á tímum aukinna alþjóðlegra áskorana, þar sem tengsl hafsins við loftslag, líffræðilega fjölbreytni, auðlindanýtingu og alþjóðlegt samstarf verða sífellt skýrari. Tvö meginþemu verða til umfjöllunar á málþinginu. Annars vegar verður farið yfir málefni hafsins á alþjóðavettvangi. Hins vegar verður fjallað um mikilvægi verndunar hafsins og sjálfbærrar nýtingar þess fyrir Ísland sem hafríki.

Hafið hefur ávallt verið undirstaða íslensks samfélags og efnahags. Íslendingar hafa því um áratugaskeið lagt áherslu á ábyrga nýtingu auðlinda hafsins, verndun hafsvæða og réttindi strandríkja. Á sama tíma hafa alþjóðlegir samningar og samstarf um málefni hafsins aldrei skipt meira máli en nú.

Dagsetningin hefur sérstaka skírskotun hér á landi þar sem hún fellur nærri íslenska Sjómannadeginum, sem í ár verður haldinn sunnudaginn 7. júní.

Dagskrá:
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, flytur ávarp og opnar viðburðinn

Málefni hafsins á alþjóðavettvangi:
-Innleiðing um málefni hafsins á alþjóðavettvangi – Dr. Matthías G. Pálsson, aðalsamningamaður fiskveiðisamninga hjá utanríkisráðuneytinu
-Sérfræðingar frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og atvinnuvegaráðuneytinu munu í kjölfarið flytja stutt erindi um málefni hafsins á alþjóðavettvangi ásamt fulltrúa frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.

Verndun hafsins og sjálfbær nýting þess:
-Hugvekja frá Þór Ásgeirssyni, forstöðumanni Sjávarútvegsskóla GRÓ
-Hafið og æskan – nemendur úr 10. bekk í Árbæjarskóla kynna verkefni um hafið sem verða til sýnis á viðburðinum
-Staða Íslands í verndun og sjálfbærri nýtingu hafsins – Sérfræðingar frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og atvinnuvegaráðuneytinu
-Hrönn Egilsdóttir, sviðstjóri umhverfissviðs Hafrannsóknarstofnunar, Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir, verndunarlíffræðingur hjá Náttúruminjasafni Íslands og Biodice, og fulltrúi frá Sjávarklasanum flytja stutt erindi um verndun hafsins og sjálfbæra nýtingu þess, auk þess sem fjallað verður um áhrif breytinga veltihringrásar Atlantshafsins (AMOC) á þessi mál.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, flytur lokaorð

Fundarstjóri er Stefán Jón Hafstein.

Nánari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur.

Meðbyr með Náttúrufræðingnum

Kæru félagar í Hinu íslenska náttúrufræðifélagi,

Síðan við skrifuðum ykkur í apríllok hefur stjórn HÍN fundið fyrir miklum meðbyr úr röðum félagsfólks og frá samfélaginu öllu. Fjöldi fólks hefur skráð sig í félagið og aðrir sent okkur hvatningarorð og hugleiðingar um stefnu Náttúrufræðingsins til framtíðar.

Einn félagi, Hannes Pétursson, hafði samband og styrkti Náttúrufræðinginn af mikilli rausn. Við færum Hannesi og ykkur öllum þökk fyrir stuðninginn og hvatninguna. Hún gefur okkur byr undir báða vængi í þeirri vinnu sem nú stendur yfir.

Stjórnin vinnur nú hörðum höndum að því að endurskipuleggja útgáfu Náttúrufræðingsins og afla fjár til hennar. Viðbúið er að auglýsingar muni birtast í Náttúrufræðingnum hér eftir. Ef þið þekkið til hjá fyrirtækjum sem gætu hugsað sér að auglýsa í ritinu, má gjarnan setja þau í samband við gjaldkera HÍN, Maríu Helgu Guðmundsdóttur (gjaldkeri@hin.is).

Innheimta félags- og áskriftargjalda fyrir árið 2026 stendur nú yfir og gengur með ágætum. Við þökkum öllum þeim sem greitt hafa félagsgjöldin nú þegar hjartanlega fyrir. Með stuðningi ykkar erum við bjartsýn á að geta borið ykkur skýrar og jákvæðar fréttir af næsta tölublaði Náttúrufræðingsins fyrr en síðar.

Með vinsemd og virðingu,
Stjórn Hins íslenska náttúrufræðifélags

Líffræðileg fjölbreytni og staða Íslands – Viðburður á vegum Biodice 🌸

Góðvinir okkar hjá Biodice eru með spennandi viðburð í gangi í tilefni alþjóðadegi líffræðilegrar fjölbreytni. Við hvetjum sem flesta til að mæta 👇

„Viðburðurinn Líffræðileg fjölbreytni og staða Íslands verður haldinn 22. maí kl. 13-14:30 í sal N-132 í Öskju, Háskóla Íslands. Á viðburðinum munum við kafa ofan í stefnu Íslands um líffræðilega fjölbreytni og fá að heyra af yfirstandandi vinnu við aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni. Að auki verða tvö verkefni kynnt sem snúa að mati á og verndun líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi. Viðburðurinn verður bæði á íslensku og ensku. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi Biodice, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis og Náttúruminjasafns Íslands.

Líffræðileg fjölbreytni vísar til fjölbreytni meðal lífvera í margbreytilegu umhverfi, þar með töldum vistkerfum á landi, í sjó og vötnum, og þau vistfræðilegu kerfi sem þær eru hluti af. Líffræðileg fjölbreytni nær til fjölbreytni innan tegunda, milli tegunda og meðal vistkerfa. Líffræðileg fjölbreytni er forsenda heilbrigðra vistkerfa sem eru undirstaða lífkerfa jarðar og þar með samfélaga mannsins. Hnignun líffræðilegrar fjölbreytni er eitt af stærstu viðfangsefnum samtímans og er nátengd loftslagsmálum, sjálfbærri þróun, auðlindanýtingu, efnahag, mengun, lýðheilsu og málefnum náttúruverndar.

Þann 22. maí ár hvert er alþjóðlegur dagur líffræðilegrar fjölbreytni haldinn til að minnast þess þegar Samningur Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni var undirritaður í Ríó 1992. Í ár er þema dagsins “staðbundnar aðgerðir fyrir hnattræn áhrif”. Í tilefni 100 ára afmælis David Attenborough þá er viðburðurinn tileinkaður honum.“

Dagskrá

13:00-13:10 – Opnun viðburðar af Skúla Skúlasyni, formanni Biodice
13:10-13:30 – Kynning á stefnu og aðgerðaáætlun stjórnvalda um líffræðilega fjölbreytni, Steinar Kaldal, sérfræðingur á skrifstofu náttúru og minjaverndar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu
13:30-13:50 – Hvernig metum við líffræðilega fjölbreytni?
Samráð til mótunar aðferðafræði sem hentar íslenskum vistkerfum, Guðrún Óskarsdóttir, Náttúrustofu Austurlands
13:50-14:10 – BioProtect project, Christophe Pampoulie, Hafrannsóknastofnun
14:10-14:30 – Almennar umræður

Hlekkur á viðburðinn á Facebook.

Frítt inn og öll velkomin!