Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 30. október 2017 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúruvísinda við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.
Það eru líffræðingarnir Bjarni K. Kristjánsson og Camille Leblanc sem flytja erindi sem þau nefna Lífið í hrauninu – lífríki í vatnsfylltum hraunhellum í Mývatnssveit
Ágrip af erindi Bjarna og Camille, haldið mánudaginn 30. október 2017.
„Í fyrirlestrinum verður fjallað um rannsóknir á vatnsfylltum hraunhellum í kringum Mývatn. Slíka hella má finna á nokkrum stöðum við vatnið, en þeir eru algengastir á Haganesi (SV við vatnið) og í landi Vagnbrekku og Vindbelgs (NV við vatnið). Í fjölmörgum hellum má finna dvergbleikju, sem Mývetningar nefna gjáarlontur. Bleikjan í aðskildum hellum myndar sérstaka stofna og er einnig erfðafræðilega ólík bleikju í Mývatni. Hellastofnarnir eru litlir, 50 – 500 fullorðnir fiskar. Markmið rannsóknana er að fylgjast með bleikjustofnum í 20 hellum til að svara spurningum um þróun í litlum stofnum í náttúrunni og hvernig umhverfisþættir geti mótað hana. Verkefnið hófst árið 2012 og eru hellarnir heimsóttir í júní og ágúst. Þá eru eins margir fiskar og mögulegt er veiddir lifandi, með rafmagni og gildrum. Fiskarnir eru mældir og merktir þannig að hægt sé að þekkja aftur einstaka fiska. Auk þess hefur annað lífríki hellana verið kortlagt.
Niðurstöður sýna að í hverjum helli er einfalt samfélag smádýra. Þessi samfélög eru tengd umhverfi hellana, bæði þegar hellar eru bornir saman og þegar skoðaður er breytileiki innan þeirra. Þessi smádýr eru mikilvæg fæða bleikjunar í hellunum, en hún er einnig mjög háð utanaðkomandi fæðu (flugum), sem mest öll kemur úr Mývatni. Bleikjan er talsvert ólík í útliti milli hella, og sömuleiðis vöxtur hennar. Auk þess má sjá töluverðan breytileika í vexti milli ára og á milli þeirra meginsvæða þar sem hellana er að finna.
Niðurstöðurnar fela í sér mikilvægar nýjar upplýsingar um eðli fjölbreytni í litlum náttúrulegum stofnum og hvernig umhverfisþættir geta mótað slíka fjölbreytni. Slík þekking er mikilvæg fyrir upplýsta ákvarðanatöku varðandi verndun og nýtingu náttúrunnar.“
Höfundarnir Bjarni K. Kristjánsson,prófessor, og Camille Leblanc, lektor, eru sérfræðingar við Háskólann á Hólum. Bjarni lauk B.S. prófi í líffræði frá Háskóla Íslands og M.S og PhD prófum frá Háskólanum í Guelph í Kanada. Camille Leblanc lauk BS prófi frá Université de Bretagne Occidentale, MS prófi frá École normale supérieure, París og INAPG, sem báðir eru í Frakklandi og doktorsprófi frá Háskóla Íslands og Ríkisháskólanum í Oregon í Bandaríkjunum. Bjarni og Camille stunda rannsóknir á skildum fræðasviðum og leitast við að skilja eðli fjölbreytileika innan tegunda fiska og samfélaga smádýra á Íslandi.