Þann 27. nóvember síðastliðinn fór fram aðalfundur Hins íslenska náttúrufræðifélags í húsnæði Hafrannsóknastofnunar og á fjarfundi. Gengið var til hefðbundinna aðalfundarstarfa og þar á meðal fór fram kjör stjórnar félagsins. Nýja stjórn skipa:
- Lísa Anne Libungan, formaður.
- Sveinn Kári Valdimarsson, varaformaður
- Guðrún Óskarsdóttir, félagsvörður.
- Kolbrún Sverrisdóttir, vefstjóri.
- Róbert Ívar Arnarsson, gjaldkeri.
- María Helga Guðmundsdóttir, ritari.
- Ólafur Patrick Ólafsson, kynningarstjóri.
Á sama tíma létu af störfum:
- Sölvi Rúnar Vignisson
- Einar Pétur Jónsson
- Benedikt Traustason
- Bryndís Guðrún Róbertsdóttir
Er þeim þakkað kærlega fyrir óeigingjarnt starf í þágu félagsins.

