Við viljum vekja athygli á þessum áhugaverða viðburði 👇
Sameinuðu þjóðirnar samþykktu árið 2008 að tilnefna 8. júní ár hvert sem Heimsdag hafsins (e. World Ocean Day) til að minna á mikilvægi hafsins fyrir þjóðir heims og hvetja til aukinnar vitundar um nauðsyn verndunar þess. Af því tilefni standa utanríkisráðuneytið og Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands fyrir málþingi sem tileinkað er hafinu mánudaginn 8. júní kl. 13.00 – 15.30 í Björtuloftum í Hörpu.
Nauðsynlegt er að skrá sig á viðburðinn hér: https://forms.office.com/e/UU02rMBQuc
Á málþinginu verður fjallað um stöðu og framtíð hafsins á tímum aukinna alþjóðlegra áskorana, þar sem tengsl hafsins við loftslag, líffræðilega fjölbreytni, auðlindanýtingu og alþjóðlegt samstarf verða sífellt skýrari. Tvö meginþemu verða til umfjöllunar á málþinginu. Annars vegar verður farið yfir málefni hafsins á alþjóðavettvangi. Hins vegar verður fjallað um mikilvægi verndunar hafsins og sjálfbærrar nýtingar þess fyrir Ísland sem hafríki.
Hafið hefur ávallt verið undirstaða íslensks samfélags og efnahags. Íslendingar hafa því um áratugaskeið lagt áherslu á ábyrga nýtingu auðlinda hafsins, verndun hafsvæða og réttindi strandríkja. Á sama tíma hafa alþjóðlegir samningar og samstarf um málefni hafsins aldrei skipt meira máli en nú.
Dagsetningin hefur sérstaka skírskotun hér á landi þar sem hún fellur nærri íslenska Sjómannadeginum, sem í ár verður haldinn sunnudaginn 7. júní.
Dagskrá:
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, flytur ávarp og opnar viðburðinn
Málefni hafsins á alþjóðavettvangi:
-Innleiðing um málefni hafsins á alþjóðavettvangi – Dr. Matthías G. Pálsson, aðalsamningamaður fiskveiðisamninga hjá utanríkisráðuneytinu
-Sérfræðingar frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og atvinnuvegaráðuneytinu munu í kjölfarið flytja stutt erindi um málefni hafsins á alþjóðavettvangi ásamt fulltrúa frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.
Verndun hafsins og sjálfbær nýting þess:
-Hugvekja frá Þór Ásgeirssyni, forstöðumanni Sjávarútvegsskóla GRÓ
-Hafið og æskan – nemendur úr 10. bekk í Árbæjarskóla kynna verkefni um hafið sem verða til sýnis á viðburðinum
-Staða Íslands í verndun og sjálfbærri nýtingu hafsins – Sérfræðingar frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og atvinnuvegaráðuneytinu
-Hrönn Egilsdóttir, sviðstjóri umhverfissviðs Hafrannsóknarstofnunar, Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir, verndunarlíffræðingur hjá Náttúruminjasafni Íslands og Biodice, og fulltrúi frá Sjávarklasanum flytja stutt erindi um verndun hafsins og sjálfbæra nýtingu þess, auk þess sem fjallað verður um áhrif breytinga veltihringrásar Atlantshafsins (AMOC) á þessi mál.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, flytur lokaorð
Fundarstjóri er Stefán Jón Hafstein.
Nánari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur.

