Kæru félagar í Hinu íslenska náttúrufræðifélagi,
Síðan við skrifuðum ykkur í apríllok hefur stjórn HÍN fundið fyrir miklum meðbyr úr röðum félagsfólks og frá samfélaginu öllu. Fjöldi fólks hefur skráð sig í félagið og aðrir sent okkur hvatningarorð og hugleiðingar um stefnu Náttúrufræðingsins til framtíðar.
Einn félagi, Hannes Pétursson, hafði samband og styrkti Náttúrufræðinginn af mikilli rausn. Við færum Hannesi og ykkur öllum þökk fyrir stuðninginn og hvatninguna. Hún gefur okkur byr undir báða vængi í þeirri vinnu sem nú stendur yfir.
Stjórnin vinnur nú hörðum höndum að því að endurskipuleggja útgáfu Náttúrufræðingsins og afla fjár til hennar. Viðbúið er að auglýsingar muni birtast í Náttúrufræðingnum hér eftir. Ef þið þekkið til hjá fyrirtækjum sem gætu hugsað sér að auglýsa í ritinu, má gjarnan setja þau í samband við gjaldkera HÍN, Maríu Helgu Guðmundsdóttur (gjaldkeri@hin.is).
Innheimta félags- og áskriftargjalda fyrir árið 2026 stendur nú yfir og gengur með ágætum. Við þökkum öllum þeim sem greitt hafa félagsgjöldin nú þegar hjartanlega fyrir. Með stuðningi ykkar erum við bjartsýn á að geta borið ykkur skýrar og jákvæðar fréttir af næsta tölublaði Náttúrufræðingsins fyrr en síðar.
Með vinsemd og virðingu,
Stjórn Hins íslenska náttúrufræðifélags

