Fyrsti HÍN viðburður ársins á Safnanótt í Kópavogi

Kynlíf fiska er miklu flóknara og skemmtilegra en margir gera sér grein fyrir. Þar mætast náttúruvísindi, hegðun og ótrúleg aðlögun í umhverfi þar sem allt snýst um að lifa af og fjölga sér. Á Safnanótt í Kópavogi flytur Lísa Anne Libungan, sjávarlíffræðingur og formaður Hins íslenska náttúrufræðifélags, lifandi og fræðandi fyrirlestur um kynlíf fiska í sjó og ferskvatni.

Í fyrirlestrinum verður meðal annars fjallað um:

  • Mökunaratferli þar sem samkeppni og samskipti spila lykilhlutverk
  • Æxlunarfjölbreytni sem er ólík öllu sem margir þekkja
  • Af hverju það borgar það sig fyrir suma laxa að vera perrar

Fyrirlesturinn verður sagður á léttan hátt, án þess að fórna fræðilegum gæðum. Hann er ætlaður fullorðnum áhorfendum og hentar öllum sem hafa áhuga á náttúru, líffræði og lífinu undir yfirborði hafs og vatns. Komdu og uppgötvaðu fiskalíf frá nýju sjónarhorni – fróðlegt og pínu kryddað!

Hvenær? 6.febrúar 2026, kl. 20:00–20:30
Hvar? Náttúrusafn Kópavogs