Boðað er til aðalfundar Hins íslenska náttúrufræðifélags fimmtudaginn 5. mars kl. 17:00. Fundurinn verður haldinn í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 105 Reykjavík, og einnig streymt á Teams.
Dagskrá aðalfundar:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar HÍN fyrir starfsárið 2025 – Lísa Anne Libungan, formaður
- Ársreikningur HÍN fyrir árið 2025 – Róbert Ívar Arnarsson, gjaldkeri
- Kosning þriggja stjórnarmeðlima til tveggja ára
- Kosning formanns faghópsins Flóruvina
- Kosning skoðunarmanna reikninga
- Önnur mál
- Endurskoðun á lögum félagsins
- Fréttabréf HÍN
- Vefmál
- Framtíð Náttúrufræðingsins

