Greinasafn fyrir flokkinn: Aðalfundur

Áminning – Aðalfundur Hins íslenska náttúrufræðifélags

Áminning – Aðalfundur Hins íslenska náttúrufræðifélags
Aðalfundur Hins íslenska náttúrufræðifélags verður haldinn fimmtudaginn 5. mars kl.
17:00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 105 Reykjavík. Einnig verður unnt að taka þátt
í fundinum í gegnum Teams.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka þátt í störfum félagsins. Fundarhlekk má
finna neðst í þessum pósti fyrir þá sem ekki eiga heimangengt.

Dagskrá aðalfundar

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar HÍN fyrir starfsárið 2025 – Lísa Anne Libungan, formaður
  3. Ársreikningur HÍN fyrir árið 2025 – Bryndís Róbertsdóttir, fyrrum gjaldkeri HÍN
  4. Kosning þriggja stjórnarmeðlima til tveggja ára. Eftirtaldir hafa gefið kost á sér til
    áframhaldandi setu í stjórn tímabilið 2026–2028:
    • Guðrún Óskarsdóttir, félagsvörður
    • Kolbrún Þóra Sverrisdóttir, vefstjóri
    • Róbert Ívar Arnarsson, gjaldkeri
  5. Kosning formanns faghópsins Flóruvina fyrir tímabilið 2026-2028:
    • Guðrún Óskarsdóttir gefur kost á sér til formennsku
  6. Kosning þriggja skoðunarmanna reikninga
    • Sölvi Vignisson hefur gefið kost á sér til starfa sem skoðunarmaður reikninga fyrir
      tímabilið 2026–2028. Enn á eftir að kjósa tvo aðila til viðbótar, einn aðalmann og
      einn varamann.
  7. Endurskoðun á lögum félagsins
  8. Önnur mál

Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum mun Ragnhildur Guðmundsdóttir,
forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands, flytja 15 mínútna erindi:
Náttúruminjasafn Íslands og ný grunnsýning um hafið
Náttúruminjasafn Íslands er eitt af þremur höfuðsöfnum landsins og starfar samkvæmt
safnalögum sem og sérlögum um safnið. Hlutverk NMSÍ er að miðla, safna, skrá og
varðveita ásamt því að rannsaka náttúru landsins. Framundan eru spennandi tímar fyrir
Náttúruminjasafnið þar sem það stefnir að flutningi í nýjar höfuðstöðvar á Seltjarnarnesi sem og að setja upp nýja grunnsýningu. Í erindinu verður farið yfir þessi næstu skref safnsins.

Ragnhildur Guðmundsdóttir er forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands. Hún lauk
BS-prófi í líffræði við Háskóla Íslands 2005 og MS-prófi í sjávarvistfræði við Háskólann í
Tromsø og Háskólasetrið á Svalbarða 2008. Hún lauk diplómaprófi í kennslufræðum við
Háskóla Íslands 2012 og doktorsprófi í líffræði 2020 við sama skóla. 
 
Barst þér Náttúrufræðingurinn í janúar?
Því miður kemur fyrir að félagar fái ekki Náttúrufræðinginn sendan heim, oftast vegna
búferlaflutninga. Ef þú fékkst ekki nýjasta tölublað Náttúrufræðingsins, sem borið var út í byrjun janúar, biðjum við þig að senda rétt heimilisfang á netfang félagsvarðar HÍN:
felagsvordur@hin.is. Þið getið nálgast janúareintak blaðsins á skrifstofu Náttúruminjasafns Íslands, Bygggörðum 12, 170 Seltjarnarnesi, alla virka daga milli kl. 9
og 16.
 
Stjórn Hins íslenska náttúrufræðifélags
 
Microsoft Teams-fundur
Tengjast:
https://teams.microsoft.com/meet/36903967839044?p=KCh801oDLQqZIuMFru
Auðkenni fundar: 369 039 678 390 44
Lykilorð: R5fW6Ri6

Aðalfundur Hins Íslenska náttúrufræðifélags

Boðað er til aðalfundar Hins íslenska náttúrufræðifélags fimmtudaginn 5. mars kl. 17:00. Fundurinn verður haldinn í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 105 Reykjavík, og einnig streymt á Teams.

Dagskrá aðalfundar:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar HÍN fyrir starfsárið 2025 – Lísa Anne Libungan, formaður
  3. Ársreikningur HÍN fyrir árið 2025 – Róbert Ívar Arnarsson, gjaldkeri
  4. Kosning þriggja stjórnarmeðlima til tveggja ára
  5. Kosning formanns faghópsins Flóruvina
  6. Kosning skoðunarmanna reikninga
  7. Önnur mál
    1. Endurskoðun á lögum félagsins
    2. Fréttabréf HÍN
    3. Vefmál
    4. Framtíð Náttúrufræðingsins

Aðalfundur Hins íslenska náttúrufræðifélags

Aðalfundur Hins íslenska náttúrufræðifélags

Boðað er til aðalfundar Hins íslenska náttúrufræðifélags fimmtudaginn 27. nóvember kl. 17:30. Fundurinn verður haldinn í húsnæði Hafrannsóknastofnunar, Fornubúðum 5, 220 Hafnafirði. Fundurinn var ekki haldin í febrúar eins og lög segja til um vegna óviðráðanlegra aðstæðna.

Dagskrá aðalfundar:

  1. Skýrsla stjórnar HÍN fyrir starfsárið 2024
  2. Ársreikningur HÍN fyrir árið 2024
  3. Kosning stjórnar
  4. Kosning formanns faghópsins Flóruvina
  5. Kosning skoðunarmanna reikninga
  6. Önnur mál
    1. Fjárhagsstaða félagsins og styrking þess til framtíðar

Stjórn Hins íslenska náttúrufræðifélags

Aðalfundur 2024

Aðalfundur Hins íslenska náttúrufræðifélags

Boðað er til aðalfundar Hins íslenska náttúrufræðifélags mánudaginn 3. júní kl. 17:30. Fundurinn verður haldinn í húsnæði Hafrannsóknastofnunar, Fornubúðum 5, 220 Hafnafirði. Fundurinn var ekki haldin í febrúar eins og lög segja til um vegna óviðráðanlegra aðstæðna.

Dagskrá aðalfundar:

  1. Skýrsla stjórnar HÍN fyrir starfsárið 2023 – Sölvi Rúnar Vignisson, formaður
  2. Ársreikningur HÍN fyrir árið 2023 – Bryndís G. Róbertsdóttir, gjaldkeri
  3. Kosning stjórnar
  4. Kosning formanns faghópsins Flóruvina
  5. Kosning skoðunarmanna reikninga
  6. Önnur mál

Stjórn Hins íslenska náttúrufræðifélags