Kæru félagsmenn Hins íslenska náttúrufræðifélags,
Við þökkum ykkur fyrir mikilvægan stuðning við félagið og Náttúrufræðinginn, sem er eitt helsta verkefni þess.
Rekstur útgáfunnar stendur nú frammi fyrir verulegum áskorunum. Undanfarin 12 ár hefur Náttúrufræðingurinn verið gefinn út í samstarfi við Náttúruminjasafn Íslands (NMSÍ), sem hefur staðið undir helmingi kostnaðar. Vegna fjárhagsstöðu safnsins hefur ritstjóra verið sagt upp og framlög til útgáfunnar sett á ís í óákveðinn tíma.
Rekstur HÍN hefur einnig verið þungur; allur tekjustofn félagsins hefur farið í útgáfuna.
Kostnaður HÍN og NMSÍ við Náttúrufræðinginn árið 2025 var um 17 milljónir króna, á meðan tekjur HÍN nema um 6–8 milljónum. Án breytinga er reksturinn ekki sjálfbær.
Markmið okkar er þó skýrt: að tryggja áframhaldandi útgáfu Náttúrufræðingsins. Á meðan unnið er að öflun fjármagns verður efni birt á vefnum, en prentað hefti gefið út um leið og fjárhagur leyfir.
Stjórnin mun grípa til tafarlausra aðgerða til að styrkja reksturinn:
- efla styrkja- og auglýsingasókn og draga úr kostnaði
- Innheimta félagsgjöld fyrr á árininu
- hækka félagsgjöld til að nálgast fyrra raunvirði
- prentuð hefti verða einungis send á félaga sem standa í skilum
- veita félagsmönnum forgang að rafrænu efni
Samhliða þessu vinnum við að því að efla starf félagsins með fjölbreyttari viðburðum og virkari þátttöku félagsmanna. Traustur rekstrargrundvöllur er lykilatriði í þeirri uppbyggingu.
Fram undan eru nauðsynlegar breytingar til að tryggja framtíð Náttúrufræðingsins. Með samstilltu átaki getum við mætt þessum áskorunum og eflt félagið til framtíðar.
Við treystum á ykkur – stuðningur félagsmanna skiptir sköpum.
Með góðri kveðju,
Stjórn Hins íslenska náttúrufræðifélags

