Góðvinir okkar hjá Biodice eru með spennandi viðburð í gangi í tilefni alþjóðadegi líffræðilegrar fjölbreytni. Við hvetjum sem flesta til að mæta 👇
„Viðburðurinn Líffræðileg fjölbreytni og staða Íslands verður haldinn 22. maí kl. 13-14:30 í sal N-132 í Öskju, Háskóla Íslands. Á viðburðinum munum við kafa ofan í stefnu Íslands um líffræðilega fjölbreytni og fá að heyra af yfirstandandi vinnu við aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni. Að auki verða tvö verkefni kynnt sem snúa að mati á og verndun líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi. Viðburðurinn verður bæði á íslensku og ensku. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi Biodice, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis og Náttúruminjasafns Íslands.
Líffræðileg fjölbreytni vísar til fjölbreytni meðal lífvera í margbreytilegu umhverfi, þar með töldum vistkerfum á landi, í sjó og vötnum, og þau vistfræðilegu kerfi sem þær eru hluti af. Líffræðileg fjölbreytni nær til fjölbreytni innan tegunda, milli tegunda og meðal vistkerfa. Líffræðileg fjölbreytni er forsenda heilbrigðra vistkerfa sem eru undirstaða lífkerfa jarðar og þar með samfélaga mannsins. Hnignun líffræðilegrar fjölbreytni er eitt af stærstu viðfangsefnum samtímans og er nátengd loftslagsmálum, sjálfbærri þróun, auðlindanýtingu, efnahag, mengun, lýðheilsu og málefnum náttúruverndar.
Þann 22. maí ár hvert er alþjóðlegur dagur líffræðilegrar fjölbreytni haldinn til að minnast þess þegar Samningur Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni var undirritaður í Ríó 1992. Í ár er þema dagsins “staðbundnar aðgerðir fyrir hnattræn áhrif”. Í tilefni 100 ára afmælis David Attenborough þá er viðburðurinn tileinkaður honum.“
Dagskrá
13:00-13:10 – Opnun viðburðar af Skúla Skúlasyni, formanni Biodice
13:10-13:30 – Kynning á stefnu og aðgerðaáætlun stjórnvalda um líffræðilega fjölbreytni, Steinar Kaldal, sérfræðingur á skrifstofu náttúru og minjaverndar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu
13:30-13:50 – Hvernig metum við líffræðilega fjölbreytni?
Samráð til mótunar aðferðafræði sem hentar íslenskum vistkerfum, Guðrún Óskarsdóttir, Náttúrustofu Austurlands
13:50-14:10 – BioProtect project, Christophe Pampoulie, Hafrannsóknastofnun
14:10-14:30 – Almennar umræður
Hlekkur á viðburðinn á Facebook.
Frítt inn og öll velkomin!

