Greinasafn eftir: ksverris

Líffræðileg fjölbreytni og staða Íslands – Viðburður á vegum Biodice 🌸

Góðvinir okkar hjá Biodice eru með spennandi viðburð í gangi í tilefni alþjóðadegi líffræðilegrar fjölbreytni. Við hvetjum sem flesta til að mæta 👇

„Viðburðurinn Líffræðileg fjölbreytni og staða Íslands verður haldinn 22. maí kl. 13-14:30 í sal N-132 í Öskju, Háskóla Íslands. Á viðburðinum munum við kafa ofan í stefnu Íslands um líffræðilega fjölbreytni og fá að heyra af yfirstandandi vinnu við aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni. Að auki verða tvö verkefni kynnt sem snúa að mati á og verndun líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi. Viðburðurinn verður bæði á íslensku og ensku. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi Biodice, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis og Náttúruminjasafns Íslands.

Líffræðileg fjölbreytni vísar til fjölbreytni meðal lífvera í margbreytilegu umhverfi, þar með töldum vistkerfum á landi, í sjó og vötnum, og þau vistfræðilegu kerfi sem þær eru hluti af. Líffræðileg fjölbreytni nær til fjölbreytni innan tegunda, milli tegunda og meðal vistkerfa. Líffræðileg fjölbreytni er forsenda heilbrigðra vistkerfa sem eru undirstaða lífkerfa jarðar og þar með samfélaga mannsins. Hnignun líffræðilegrar fjölbreytni er eitt af stærstu viðfangsefnum samtímans og er nátengd loftslagsmálum, sjálfbærri þróun, auðlindanýtingu, efnahag, mengun, lýðheilsu og málefnum náttúruverndar.

Þann 22. maí ár hvert er alþjóðlegur dagur líffræðilegrar fjölbreytni haldinn til að minnast þess þegar Samningur Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni var undirritaður í Ríó 1992. Í ár er þema dagsins “staðbundnar aðgerðir fyrir hnattræn áhrif”. Í tilefni 100 ára afmælis David Attenborough þá er viðburðurinn tileinkaður honum.“

Dagskrá

13:00-13:10 – Opnun viðburðar af Skúla Skúlasyni, formanni Biodice
13:10-13:30 – Kynning á stefnu og aðgerðaáætlun stjórnvalda um líffræðilega fjölbreytni, Steinar Kaldal, sérfræðingur á skrifstofu náttúru og minjaverndar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu
13:30-13:50 – Hvernig metum við líffræðilega fjölbreytni?
Samráð til mótunar aðferðafræði sem hentar íslenskum vistkerfum, Guðrún Óskarsdóttir, Náttúrustofu Austurlands
13:50-14:10 – BioProtect project, Christophe Pampoulie, Hafrannsóknastofnun
14:10-14:30 – Almennar umræður

Hlekkur á viðburðinn á Facebook.

Frítt inn og öll velkomin!

Miklar áskoranir í rekstri Náttúrufræðingsins

Kæru félagsmenn Hins íslenska náttúrufræðifélags,

Við þökkum ykkur fyrir mikilvægan stuðning við félagið og Náttúrufræðinginn, sem er eitt helsta verkefni þess.

Rekstur útgáfunnar stendur nú frammi fyrir verulegum áskorunum. Undanfarin 12 ár hefur Náttúrufræðingurinn verið gefinn út í samstarfi við Náttúruminjasafn Íslands (NMSÍ), sem hefur staðið undir helmingi kostnaðar. Vegna fjárhagsstöðu safnsins hefur ritstjóra verið sagt upp og framlög til útgáfunnar sett á ís í óákveðinn tíma.

Rekstur HÍN hefur einnig verið þungur; allur tekjustofn félagsins hefur farið í útgáfuna.

Kostnaður HÍN og NMSÍ við Náttúrufræðinginn árið 2025 var um 17 milljónir króna, á meðan tekjur HÍN nema um 6–8 milljónum. Án breytinga er reksturinn ekki sjálfbær.

Markmið okkar er þó skýrt: að tryggja áframhaldandi útgáfu Náttúrufræðingsins. Á meðan unnið er að öflun fjármagns verður efni birt á vefnum, en prentað hefti gefið út um leið og fjárhagur leyfir.

Stjórnin mun grípa til tafarlausra aðgerða til að styrkja reksturinn:

  • efla styrkja- og auglýsingasókn og draga úr kostnaði
  • Innheimta félagsgjöld fyrr á árininu
  • hækka félagsgjöld til að nálgast fyrra raunvirði
  • prentuð hefti verða einungis send á félaga sem standa í skilum
  • veita félagsmönnum forgang að rafrænu efni

Samhliða þessu vinnum við að því að efla starf félagsins með fjölbreyttari viðburðum og virkari þátttöku félagsmanna. Traustur rekstrargrundvöllur er lykilatriði í þeirri uppbyggingu.

Fram undan eru nauðsynlegar breytingar til að tryggja framtíð Náttúrufræðingsins. Með samstilltu átaki getum við mætt þessum áskorunum og eflt félagið til framtíðar.

Við treystum á ykkur – stuðningur félagsmanna skiptir sköpum.

Með góðri kveðju,
Stjórn Hins íslenska náttúrufræðifélags

Fjöruferð í Gróttu

Sunnudaginn 19. apríl milli kl. 12:30 og 14:30 munu Náttúruminjasafn Íslands, Náttúruverndarstofnun og Hafrannsóknunarstofnun bjóða upp á fjöruferð í Gróttu.
https://fb.me/e/7ONOd3axp

Þar kynnumst við töfrum fjörunnar og lærum að þekkja helstu lífverur sem þar búa. Kjörið tækifæri fyrir fjölskyldur til að skemmta sér og tengjast náttúrunni á skemmtilegan hátt.
Þátttakendur eru hvattir til að taka með ílát til að auðvelda leitina og vera klædd til að leika sér í fjörunni.

Það eru takmörkuð bílastæði úti við Gróttu og gott ef fólk getur nýtt sér aðra ferðamáta. Strætó nr. 11 stoppar nálægt Gróttu.

Viðburðurinn er ókeypis og hluti af dagskrá sem tengist Life-Icewater verkefninu.

Hálendishátíð og Græn ganga Landverndar 🌿🌻

Góðvinir okkar hjá Landvernd standa fyrir mjög svo spennandi viðburðum Sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 23. apríl.
Græna gangan hefst klukkan 13:30 og verður gengið frá Arnarhóli að Hljómskálagarðinum. Gangan er tileinkuð vernd Íslenskrar náttúru og er samstarfsverkefni náttúruverndarsamtaka um allt land 💚
Sjá má nánar inn á facebook viðburði göngunnar hér 👇
https://fb.me/e/5RnqOldwD

Um kvöldið verður síðan sannkölluð hátíð, Hálendishátíð landverndar! Hálendishátíðin er til að vekja athygli á verndun íslenskrar náttúru og eru stórglæsilegir listamenn sem taka þátt 🪩
Nánari upplýsingar má finna hér 👇
https://fb.me/e/4qdYTGP81