Afmælisrit Örnólfs Thorlaciusar

Þann 9. september næstkomandi verður Örnólfur Thorlacius, fyrrverandi rektor Menntaskólans í Hamrahlíð, 75 ára. Af því tilefni hafa vinir og velunnarar hans tekið höndum saman og ákveðið að gefa út vandað afmælisrit honum til heiðurs. Þar kennir margra grasa, eins og vænta mátti, og verður þarna að finna fjölmargar greinar, gamlar og nýrri, en allar þó úr safni afmælisbarnsins, og koma sumar þeirra ekki fyrir almenningssjónir fyrr en í bók þessari. Þær eiga það allar sameiginlegt að snerta ýmist vísindi eða náttúrufræði og m.a. verður þarna grein um sögu tímamælinga og önnur um geirfuglinn svo eitthvað sé nefnt.

Ritstjóri afmælisritsins er Sigurður Ægisson, guðfræðingur og þjóðfræðingur, en aðrir í ritnefnd eru Bjarni E. Guðleifsson og Álfheiður Ingadóttir og er það ósk allra sem að því standa að heillaóskaskráin (Tabula gratulatoria), sem verður þar fremst, verði sem lengst og glæsilegust. Verð ritsins er kr. 5.900 (sendingargjald innifalið í verði) og er það innheimt fyrirfram, enda miðast upplag bókarinnar við áskrifendafjöldann.

Bókaútgáfan Hólar annast útgáfu afmælisritsins og er hægt að gerast áskrifandi þess í: holar@simnet .is og í s. 587-2619.